Ráðstefna evrópsku matsfræðisamtakanna (European Evaluation Society) verður haldin í Helsinki í Finnlandi dagana 3.-5. október 2012. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Evaluation in the networked society: New concepts, New challenges, New solutions. Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna á þessari vefslóð: http://www.europeanevaluation.org/conferences/ees-conferences-and-events/upcoming1/10th-ees-biennial-conference.htm
Kynningarfundur
Þann 24. apríl næstkomandi stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir fundi þar sem kynntar verða tvær nýlegar rannsóknir er tengjast mati á skólastarfi.
Halldóra Pétursdóttir gerir grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sinnar sem fjallar um matsaðferðir í leikskólum og tengingu þeirra við matsnálganir og matsstaðla. Hún var framkvæmd í leikskólum í Reykjavík á árunum 2009-2010 og styrkt af Reykjavíkurborg.
Halldóra Magnúsdóttir fjallar um niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem ber heitið: „Bright start“: námsefni og kennsluaðferðir sem efla nemendur og móta góðan skólabrag. Bright Start er nýtt námsefni á Íslandi þar sem áhersla er á markvissa þjálfun vitrænna ferla hjá börnum. Í rannsókninni fylgdist Halldóra með kennslu þar sem Bright Start var notað og lagði mat á frammistöðu barnanna í völdum þáttum, fyrir og eftir kennsluna.
Fundurinn verður haldinn í Vindheimum á 7. hæð Borgartúni 12-14 frá klukkan 16.00–17.30. Allir velkomnir.
Árleg ráðstefna ameríska matsfræðifélagsins, 24.-27. október 2012
Við viljum vekja athygli á ráðstefnu ameríska matsfræðifélagsins (Americal Evaluation Association) sem haldin verður í Minneapolis, Minnesota 24.-27. október 2012. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Evaluation in Complex Ecologies Relationships, Responsibilities, Relevance. Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna á þessari vefslóð: http://www.eval.org/eval2012/default.asp
Frestun á kynningarfundi Íslenska matsfræðifélagsins
Af óviðráðanlegum ástæðum verður kynningarfundi á vegum Íslenska matsfræðifélagsins sem átti að vera í dag frestað. Tilkynning um nýjan fundartíma verður send út síðar.
Kynningarfundur
Þann 17. janúar næstkomandi stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir fundi þar sem kynntar verða tvær nýlegar rannsóknir er tengjast mati á skólastarfi.
Halldóra Pétursdóttir gerir grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sinnar sem fjallar um matsaðferðir í leikskólum og tengingu þeirra við matsnálganir og matsstaðla. Hún var framkvæmd í leikskólum í Reykjavík á árunum 2009-2010 og styrkt af Reykjavíkurborg.
Halldóra Magnúsdóttir fjallar um niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem ber heitið: „Bright start“: námsefni og kennsluaðferðir sem efla nemendur og móta góðan skólabrag. Bright Start er nýtt námsefni á Íslandi þar sem áhersla er á markvissa þjálfun vitrænna ferla hjá börnum. Í rannsókninni fylgdist Halldóra með kennslu þar sem Bright Start var notað og lagði mat á frammistöðu barnanna í völdum þáttum, fyrir og eftir kennsluna.
Fundurinn verður haldinn í Vindheimum á 7. hæð Borgartúni 12-14 frá klukkan 16.00–17.30. Allir velkomnir.
Stjórnarfundur 4. október 2011
Stjórn íslenska matsfræðifélagsins
Þriðjudaginn 4. október 2011, kl.11.30 kom stjórn íslenska matsfræðifélagsins saman til fundar í Bolholti 6.
Mættir: Björk Ólafsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Auður Pálsdóttir, Hildur Skarphéðinsdóttir og Ólafur H. Jóhannsson.
Björk Ólafsdóttir, formaður setti fund og stjórnaði.
1. Fundargerð síðasta fundar
Samþykkt.
2. Vefsíða félagsins
Farið yfir uppsetningu á vefsíðu félagsins sem brátt lítur dagsins ljós. Þar verður að finna upplýsingar um matsfræði, skýrslur og greinar ásamt upplýsingum um ráðstefnur og fundi.
3. Starfsáætlun stjórnar
Ýmsar hugmyndir ræddar um fundi og ráðstefnur í vetur svo sem kynningu á leiðbeiningum félagsins um innra mat skóla og á leiðbeiningum sambandsins á ytra mati sveitarfélaga. Rætt um að leggja lokahönd á leiðbeiningaheftið um innra mat skóla og tekur Ólafur að sér að rita formála fh. stjórnar. Rætt um að Björk stofni netfang fyrir félagið sem hægt er að senda út upplýsingar frá félaginu til skóla. Tveir opnir félagsfundir ákveðnir í haust:
- Kynningafundur haldinn miðvikudaginn 9. nóvember kl.16.00 – 18.00 um leiðbeiningaheftið um innra mat skóla. Rætt verður við Sigurlínu og Brynju Dís um kynningu.
- Jólafundur verði haldinn 6. eða 7. desember í sal Reykjavíkurborgar við Höfðatún.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl.12.50
amh
Stjórnarfundur 16. júní 2011
Stjórn íslenska matsfræðifélagsins
Fimmtudaginn 16. júní 2011, kl.12.00 kom stjórn íslenska matsfræðifélagsins saman til fundar í Bolholti 6.
Mættir: Björk Ólafsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Auður Pálsdóttir og Sigurlína Davíðsdóttir.
Björk Ólafsdóttir, formaður setti fund og stjórnaði.
1. Stjórn íslenska matsfræðifélagsins
Nýkjörin stjórn skipti með sér verkum á eftirfarandi hátt:
Björk Ólafsdóttir, formaður
Anna Magnea Hreinsdóttir, ritari
Auður Pálsdóttir og Hildir Skarphéðinsdóttir, meðstjórnendur
Ólafur H. Jóhannsson, gjaldkeri
Sigurlína Davíðsdóttir og Helga Dís Sigurðardóttir, varastjórn.
2. Vefsíða félagsins
Umræður um endurnýjun vefsíðu félagsins, útlit og uppsetningu.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 13.00
amh
Kynningarfundur – leiðbeiningar um innra mat skóla
Minni á kynningarfundinn í dag klukkan 16.00 í stofu H202 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Á fundinum mun Sigurlína Davíðsdóttir kynna leiðbeiningar um innra mat skóla sem Íslenska matsfræðifélagið hefur gefið út og gert aðgengilegar hér á síðunni undir: Matsfræði – leiðbeiningar. Þar er ennfremur að finna skjákynningu með erindi Sigurlínu.
Á fundinum mun Brynja Dís Björnsdóttir, verkefnastjóri í Álfhólsskóla í Kópavogi, einnig segja frá hvernig leiðbeiningarnar nýttust henni í stefnumótunarvinnu Álfhólsskóla.
Leiðbeiningar um innra mat skóla
Íslenska matsfræðifélagið hefur gefið út leiðbeiningar um innra mat skóla sem eru aðgengilegar á eftirfarandi slóð á heimasíðu félagsins: http://eval.is/matsfraedi/handbaekur/. Leiðbeiningarnar eru ætlaðar þeim sem annast innra mat skóla, óháð skólastigum. Öllum er heimilt að nýta efnið án nokkurra kvaða annarra en að geta heimildar ef vitnað er í ritið.
Kynning á nýjum leiðbeiningum um innra mat skóla
Íslenska matsfræðifélagið mun kynna nýjar leiðbeiningar um innra mat skóla þann 9. nóvember nk. kl. 16–17 í stofu H202 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Leiðbeiningarnar voru unnar af sjálfboðaliðsteymi frá Íslenska matsfræðifélaginu undir stjórn Sigurlínu Davíðsdóttur, prófessors á Menntavísindasviði HÍ.
Á fundinum mun Sigurlína kynna leiðbeiningarnar og síðan mun Brynja Dís Björnsdóttir, verkefnastjóri í Álfhólsskóla í Kópavogi, segja frá hvernig leiðbeiningarnar nýttust henni í stefnumótunarvinnu Álfhólsskóla.
Allir velkomnir.