Stjórnarfundur 4. október 2011

Stjórn íslenska matsfræðifélagsins

Þriðjudaginn 4. október 2011, kl.11.30 kom stjórn íslenska matsfræðifélagsins saman til fundar í Bolholti 6.

Mættir: Björk Ólafsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Auður Pálsdóttir, Hildur Skarphéðinsdóttir og Ólafur H. Jóhannsson. 

Björk Ólafsdóttir, formaður setti  fund og stjórnaði.

 1.      Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt.

2.      Vefsíða félagsins

Farið yfir uppsetningu á vefsíðu félagsins sem brátt lítur dagsins ljós. Þar verður að finna upplýsingar um matsfræði, skýrslur og greinar ásamt upplýsingum um ráðstefnur og fundi.

3.      Starfsáætlun stjórnar

Ýmsar hugmyndir ræddar um fundi og ráðstefnur í vetur svo sem kynningu á leiðbeiningum félagsins um innra mat skóla og á leiðbeiningum sambandsins á ytra mati sveitarfélaga. Rætt um að leggja lokahönd á leiðbeiningaheftið um innra mat skóla og tekur Ólafur að sér að rita formála fh. stjórnar. Rætt um að Björk stofni netfang fyrir félagið sem hægt er að senda út upplýsingar frá félaginu til skóla. Tveir opnir félagsfundir ákveðnir í haust:

  • Kynningafundur haldinn miðvikudaginn 9. nóvember kl.16.00 – 18.00 um leiðbeiningaheftið um innra mat skóla. Rætt verður við Sigurlínu og Brynju Dís um kynningu.
  • Jólafundur verði haldinn 6. eða 7. desember í sal Reykjavíkurborgar við Höfðatún.

 

 Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl.12.50

amh

Stjórnarfundur 16. júní 2011

Stjórn íslenska matsfræðifélagsins

Fimmtudaginn 16. júní 2011, kl.12.00 kom stjórn íslenska matsfræðifélagsins saman til fundar í Bolholti 6.

Mættir: Björk Ólafsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Auður Pálsdóttir og Sigurlína Davíðsdóttir. 

Björk Ólafsdóttir, formaður setti  fund og stjórnaði.

 1.      Stjórn íslenska matsfræðifélagsins

Nýkjörin stjórn skipti með sér verkum á eftirfarandi hátt:

Björk Ólafsdóttir, formaður

Anna Magnea Hreinsdóttir, ritari

Auður Pálsdóttir og Hildir Skarphéðinsdóttir, meðstjórnendur

Ólafur H. Jóhannsson, gjaldkeri

Sigurlína Davíðsdóttir og Helga Dís Sigurðardóttir, varastjórn. 

2.      Vefsíða félagsins

Umræður um endurnýjun vefsíðu félagsins, útlit og uppsetningu.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 13.00

amh

Fundargerð aðalfundar í Íslenska matsfræðifélaginu, 7. júní 2010

Fundinn sátu:  Sigurborg Matthíasdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Ólafur H. Jóhannsson, Halldóra Pétursdóttir, Helga Dís Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Björk Ólafsdóttir, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

Lögmæti fundarins kannað

  • Fundurinn taldist lögmætur þar sem löglega var til hans boðað

Kosning fundarstjóra

  • Lagt var til að Halldóra Pétursdóttir tæki að sér fundarstjórn og var hún einróma kosin.

 Ársskýrsla stjórnar lesin upp

  • Björk las ársskýrslu stjórnar og var henni jafnframt dreift til fundarmanna.

Ársreikningur lagður fram til samþykktar

  • Ólafur fór yfir ársreikning félagsins og var hann samþykktur. Fundarmenn fengu afrit af ársreikningi.

 Lagabreytingar

  • Lögð var fram tillaga að breytingu á 3. gr. laganna.  Greinin fyrir breytingu hljóðaði þannig:

 „Aðild að félaginu geta átt einstaklingar sem lokið hafa meistaranámi eða doktorsnámi með sérstaka áherslu á matsrannsóknir og aðrir þeir sem stjórn telur uppfylla kröfur sem gerðar eru til háskólamenntaðra matsfræðinga.  Sá sem vill ganga í félagið sendir skriflega umsókn um inngöngu til stjórnar. Úrsögn úr félaginu skal sömuleiðs vera skrifleg til stjórnar. Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skoðast það sem úrsögn úr félaginu.“

 Eftir breytingu hljóðar greinin þannig:

 „Aðild að félaginu geta átt einstaklingar sem lokið hafa meistaranámi eða doktorsnámi með sérstaka áherslu á matsrannsóknir og aðrir þeir sem hafa þekkingu á matsfræðum og reynslu af því að starfa við matsrannsóknir eða framkvæmd innra eða ytra mats.  Sá sem vill ganga í félagið sendir skriflega umsókn um inngöngu til stjórnar. Úrsögn úr félaginu skal sömuleiðis vera skrifleg til stjórnar. Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skoðast það sem úrsögn úr félaginu.

 Breytingin var samþykkt samhljóða af fundarmönnum.

Kosning nýrrar stjórnar og skoðunarmanna reikninga

  • Kosning nýrrar stjórnar fór ekki fram í ár. Skoðunarmenn eru sömuleiðis þeir sömu og áður. 

 Önnur mál:   

  • Starfsáætlun næsta starfsár – hugmyndir:
    • Opinn fræðslufundur þar sem kynntar eru nýútgefnar leiðbeiningar um (1) innra mat á skólastarfi – Sigurlína og (2) skólastefnugerð – Björk.  Gæti verið efni haustfundar
    • Greina frá mótun vinnu í stýrihóp leikskólasviðs Reykjavíkurborgar – Halldóra og vinnu í stýrihóp í Mosfellsbæ – Helga Dís.  Halldóra er með rannsókn í smíðum – gera grein fyrir niðurstöðum hennar.
    • Fara út fyrir skólaumhverfið og skoða hvernig aðrar stofnanir eða fyrirtæki eru að meta sitt starf. 

Ákveðið var að félagatal á heimasíðu hefði að geyma nafn félaga og netföng.  Sigríður ætlar að laga uppsetningu á ritaskrá á heimasíðu og senda á félagsmenn form fyrir þá að fara eftir.

  Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18:30.

 Björk Ólafsdóttir

Fundargerð stjórnarfundar 21. september 2010

Fundarstaður: Samband íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30 [Lesa meira...]

Fundargerð stjórnarfundar 13. október 2009

Fundargerð: Fundur í stjórn Íslenska matsfræðifélagsins, 13. október 2009 [Lesa meira...]

Fundargerð stjórnarfundar 5.nóvember 2008

Fundargerð: Fundur íslenska matfræðifélagsins er haldinn var 5.nóvember 2008 [Lesa meira...]

Fundargerð stjórnarfundar 1.október 2008

Fundargerð: Fundur íslenska matfræðifélagsins er haldinn var 1.október 2008 [Lesa meira...]

Fundargerð aðalfundar 6.maí 2008

Fundargerð: Aðalfundur íslenska matfræðifélagsins er haldinn var 6. maí 2008 [Lesa meira...]

Stjórnarfundur í íslenska matsfræðifélaginu

Stjórnarfundur í íslenska matsfræðifélaginu. [Lesa meira...]

Fundargerð stjórnarfundar 23.janúar 2008

Fundarstaður: Skrifstofa konrektors Menntaskólans við Hamrahlíð
Fundartími: Í hádegi 12:10 [Lesa meira...]