Fundargerð aðalfundar í Íslenska matsfræðifélaginu, 7. júní 2010

Fundinn sátu:  Sigurborg Matthíasdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Ólafur H. Jóhannsson, Halldóra Pétursdóttir, Helga Dís Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Björk Ólafsdóttir, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

Lögmæti fundarins kannað

  • Fundurinn taldist lögmætur þar sem löglega var til hans boðað

Kosning fundarstjóra

  • Lagt var til að Halldóra Pétursdóttir tæki að sér fundarstjórn og var hún einróma kosin.

 Ársskýrsla stjórnar lesin upp

  • Björk las ársskýrslu stjórnar og var henni jafnframt dreift til fundarmanna.

Ársreikningur lagður fram til samþykktar

  • Ólafur fór yfir ársreikning félagsins og var hann samþykktur. Fundarmenn fengu afrit af ársreikningi.

 Lagabreytingar

  • Lögð var fram tillaga að breytingu á 3. gr. laganna.  Greinin fyrir breytingu hljóðaði þannig:

 „Aðild að félaginu geta átt einstaklingar sem lokið hafa meistaranámi eða doktorsnámi með sérstaka áherslu á matsrannsóknir og aðrir þeir sem stjórn telur uppfylla kröfur sem gerðar eru til háskólamenntaðra matsfræðinga.  Sá sem vill ganga í félagið sendir skriflega umsókn um inngöngu til stjórnar. Úrsögn úr félaginu skal sömuleiðs vera skrifleg til stjórnar. Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skoðast það sem úrsögn úr félaginu.“

 Eftir breytingu hljóðar greinin þannig:

 „Aðild að félaginu geta átt einstaklingar sem lokið hafa meistaranámi eða doktorsnámi með sérstaka áherslu á matsrannsóknir og aðrir þeir sem hafa þekkingu á matsfræðum og reynslu af því að starfa við matsrannsóknir eða framkvæmd innra eða ytra mats.  Sá sem vill ganga í félagið sendir skriflega umsókn um inngöngu til stjórnar. Úrsögn úr félaginu skal sömuleiðis vera skrifleg til stjórnar. Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skoðast það sem úrsögn úr félaginu.

 Breytingin var samþykkt samhljóða af fundarmönnum.

Kosning nýrrar stjórnar og skoðunarmanna reikninga

  • Kosning nýrrar stjórnar fór ekki fram í ár. Skoðunarmenn eru sömuleiðis þeir sömu og áður. 

 Önnur mál:   

  • Starfsáætlun næsta starfsár – hugmyndir:
    • Opinn fræðslufundur þar sem kynntar eru nýútgefnar leiðbeiningar um (1) innra mat á skólastarfi – Sigurlína og (2) skólastefnugerð – Björk.  Gæti verið efni haustfundar
    • Greina frá mótun vinnu í stýrihóp leikskólasviðs Reykjavíkurborgar – Halldóra og vinnu í stýrihóp í Mosfellsbæ – Helga Dís.  Halldóra er með rannsókn í smíðum – gera grein fyrir niðurstöðum hennar.
    • Fara út fyrir skólaumhverfið og skoða hvernig aðrar stofnanir eða fyrirtæki eru að meta sitt starf. 

Ákveðið var að félagatal á heimasíðu hefði að geyma nafn félaga og netföng.  Sigríður ætlar að laga uppsetningu á ritaskrá á heimasíðu og senda á félagsmenn form fyrir þá að fara eftir.

  Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18:30.

 Björk Ólafsdóttir

Fundargerð aðalfundar 6.maí 2008

Fundargerð: Aðalfundur íslenska matfræðifélagsins er haldinn var 6. maí 2008 [Lesa meira...]

Íslenska matsfræðifélagið stofnað

15/05/2007

Íslenska matsfræðifélagið var stofnað á fundi félagsins í Menntaskólanum í Kópavogi þann 15. maí 2007. Félagið er fagfélag matsfræðinga á Íslandi. [Lesa meira...]