Af óviðráðanlegum ástæðum verður kynningarfundi á vegum Íslenska matsfræðifélagsins sem átti að vera í dag frestað. Tilkynning um nýjan fundartíma verður send út síðar.
Kynningarfundur
Þann 17. janúar næstkomandi stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir fundi þar sem kynntar verða tvær nýlegar rannsóknir er tengjast mati á skólastarfi.
Halldóra Pétursdóttir gerir grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sinnar sem fjallar um matsaðferðir í leikskólum og tengingu þeirra við matsnálganir og matsstaðla. Hún var framkvæmd í leikskólum í Reykjavík á árunum 2009-2010 og styrkt af Reykjavíkurborg.
Halldóra Magnúsdóttir fjallar um niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem ber heitið: „Bright start“: námsefni og kennsluaðferðir sem efla nemendur og móta góðan skólabrag. Bright Start er nýtt námsefni á Íslandi þar sem áhersla er á markvissa þjálfun vitrænna ferla hjá börnum. Í rannsókninni fylgdist Halldóra með kennslu þar sem Bright Start var notað og lagði mat á frammistöðu barnanna í völdum þáttum, fyrir og eftir kennsluna.
Fundurinn verður haldinn í Vindheimum á 7. hæð Borgartúni 12-14 frá klukkan 16.00–17.30. Allir velkomnir.
Stjórnarfundur 4. október 2011
Stjórn íslenska matsfræðifélagsins
Þriðjudaginn 4. október 2011, kl.11.30 kom stjórn íslenska matsfræðifélagsins saman til fundar í Bolholti 6.
Mættir: Björk Ólafsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir, Auður Pálsdóttir, Hildur Skarphéðinsdóttir og Ólafur H. Jóhannsson.
Björk Ólafsdóttir, formaður setti fund og stjórnaði.
1. Fundargerð síðasta fundar
Samþykkt.
2. Vefsíða félagsins
Farið yfir uppsetningu á vefsíðu félagsins sem brátt lítur dagsins ljós. Þar verður að finna upplýsingar um matsfræði, skýrslur og greinar ásamt upplýsingum um ráðstefnur og fundi.
3. Starfsáætlun stjórnar
Ýmsar hugmyndir ræddar um fundi og ráðstefnur í vetur svo sem kynningu á leiðbeiningum félagsins um innra mat skóla og á leiðbeiningum sambandsins á ytra mati sveitarfélaga. Rætt um að leggja lokahönd á leiðbeiningaheftið um innra mat skóla og tekur Ólafur að sér að rita formála fh. stjórnar. Rætt um að Björk stofni netfang fyrir félagið sem hægt er að senda út upplýsingar frá félaginu til skóla. Tveir opnir félagsfundir ákveðnir í haust:
- Kynningafundur haldinn miðvikudaginn 9. nóvember kl.16.00 – 18.00 um leiðbeiningaheftið um innra mat skóla. Rætt verður við Sigurlínu og Brynju Dís um kynningu.
- Jólafundur verði haldinn 6. eða 7. desember í sal Reykjavíkurborgar við Höfðatún.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl.12.50
amh
Kynning á nýjum leiðbeiningum um innra mat skóla
Íslenska matsfræðifélagið mun kynna nýjar leiðbeiningar um innra mat skóla þann 9. nóvember nk. kl. 16–17 í stofu H202 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Leiðbeiningarnar voru unnar af sjálfboðaliðsteymi frá Íslenska matsfræðifélaginu undir stjórn Sigurlínu Davíðsdóttur, prófessors á Menntavísindasviði HÍ.
Á fundinum mun Sigurlína kynna leiðbeiningarnar og síðan mun Brynja Dís Björnsdóttir, verkefnastjóri í Álfhólsskóla í Kópavogi, segja frá hvernig leiðbeiningarnar nýttust henni í stefnumótunarvinnu Álfhólsskóla.
Allir velkomnir.
Alþjóðleg ráðstefna AES
29. ágúst – 2. september halda áströlsku matsfræðisamtökin (Australasian Evaluation Society) alþjóðlega ráðstefnu í Sidney, Ástralíu. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Evaluation and Influence. Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna á þessari vefslóð: http://www.aes2011.com.au/
Árleg ráðstefna AEA
Við viljum vekja athygli á ráðstefnu ameríska matsfræðifélagsins (American Evaluation Association) sem haldin verður í Anaheim, Californiu 2. – 5. nóvember 2011. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Values and Valuing in Evaluation. Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna á þessari vefslóð: http://www.eval.org/eval2011/default.asp
Ráðstefna EES í Prag
20/02/2010
Við viljum vekja athygli á ráðstefnu Evrópska matsfræðifélagsins sem haldin verður í Prag 6. til 8. október 2010. [Lesa meira...]
Hádegisverðarfundur 5.mars
02/03/2008
Miðvikudaginn 5. mars stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir hádegisverðarfundi. [Lesa meira...]