Ágætu félagar
Nú þegar þessu fyrsta starfsári Íslenska matsfræðifélagsins er að ljúka er ágætt að líta aðeins um öxl og skoða það helsta sem við höfum verið að gera.
Stofnfundinn héldum við fyrir tæpu ári síðan, þann 15. maí 2007 á kennarastofu Menntaskólans í Kópavogi. Á fundinn mættu tíu manns og níu þeirra skráðu sig þegar í félagið. Fjórir að auki höfðu lýst yfir áhuga á að gerast félagar en komust ekki á stofnfundinn. Enn aðrir fjórir bættust síðan í hópinn á stofnárinu þannig að í dag telur félagafjöldinn 17 manns.
Tveir hádegisverðarfundir voru haldnir á starfsárinu. Fyrri fundurinn var haldinn í október í Blómasal Hótel Loftleiða og þá fengum við þær Sigurlínu Davíðsdóttur og Penny Lisi til að segja frá langtímarannsókn sinni á sjálfsmati í skólum þar sem unnið er með lýðræðislegum umræðum. Á fundinn mættu 14 manns sem voru félagsmenn og gestir þeirra.
Seinni fundurinn var haldinn í mars á veitingastað Maður lifandi við Borgartún. Á þeim fundi sagði Katrín Frímannsdóttir okkur frá doktorsritgerðinni sinni sem heitir „Tilgangur, framkvæmd og notkun sjálfsmats í sex íslenskum grunnskólum“. Á fundinn mættu 13 manns. Glærur frá fundinum er að finna á heimasíðu félagsins www.eval.is.
Fundirnir voru báðir mjög fróðlegir og finnst okkur í stjórninni þessi vettvangur að hittast yfir hádegisverði og fá einhvern til að koma með innlegg á fundinn hafa gefist vel sem vettvangur faglegrar umræðu um matsrannsóknir – og eins til að efla tengsl félagsmanna.
Heimasíða félagsins var sett á laggirnar. Leitað var eftir léni sem hefði tilvísun í íslenskt nafn félagsins svo sem www.imf.is, www.mfi.is eða www.mat.is. Þau lágu hins vegar ekki á lausu svo lendingin var www.eval.is. Hugmyndin kemur frá ameríska matsfræðifélaginu sem eru með veffangið www.eval.org. Það var Sigríður Sigurðardóttir sem hafði veg og vanda að uppsetningu síðunnar og sinnir vefstjórn.
Einnig var ráðist í að hanna bækling félagsins með það að sjónarmiði að kynna félagið – bæði fyrir þeim sem hugsanlega ættu erindi í félagið og eins fyrir þeim sem mögulega gætu nýtt sér þjónustu félagsmanna. Að kynna fræðigreinina og stuðla að vexti og viðgangi hennar á Íslandi er jú eitt af þeim markmiðum sem við settum okkur í upphafi.
Þá má geta þess að lokum að um þriðjungur félagsmanna lagði land undir fót í byrjun nóvember og fór á ráðstefnu sem ameríska matsfræðifélagið heldur árlega. Ráðstefnan var að þessu sinni haldin í Baltimore og bar heitið: Learning to evaluate… evaluating to learn. Þetta var fjögurra daga ráðstefna með yfir 800 fyrirlestrum svo mesti höfuðverkurinn fólst í að velja á milli. Ráðstefnan var í alla staði hin áhugaverðasta.
Við viljum þakka ykkur fyrir góðan vetur og góða fundarsókn og vonumst til að sjá félagið okkar vaxa og dafna hér eftir sem hingað til.
F.h. stjórnar
Björk Ólafsdóttir