Ársskýrsla 2009

Ágætu félagar

Þá er öðru starfsári Íslenska matsfræðifélagsins að ljúka og rétt að nota tækifærið og líta yfir verkefni ársins.

Við héldum tvo fundi á starfsárinu og var fyrirkomulag þeirra með öðrum hætti en árið áður.  Fyrsta starfsárið horfðum við fyrst og fremst til félagsmanna og héldum hádegis­verðarfundi með kynningum sem við töldum að myndu höfða til þeirra.  Í ár voru hins vegar báðir fundirnir sem við héldum opnir fundir þar sem áherslan var á að kynna fræði­greinina út á við.  Það má því segja að fyrsta starfsárið höfum við lagt áherslu á þau markmið félagsins að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um matsrannsóknir og að efla tengsl og samstarf félagsmanna en á öðru starfsári hafi þunginn verið lagður á mark­miðið að kynna fræðigreinina og stuðla að vexti hennar og viðgangi í samfélaginu.

Fyrri fundur vetrarins var haldinn 12. nóvember í húsnæði menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.  Þetta var eins og fram hefur komið opinn fundur þar sem fjórir félagsmenn Íslenska matsfræðifélagsins héldu framsögu um matsákvæði í nýjum lögum fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.  Védís Grönvold fjallaði um lögin frá sjónarmiði menntamála­ráðu­neytis­ins, Margrét Friðriksdóttir hélt erindi um hvernig þau birtast framhaldsskólunum og Ólafur Jóhannsson og Halldóra Pétursdóttir fjölluðu um þau út frá leik- og grunnskól­unum.  Á fundinn mættu rúmlega 40 manns, sem kom okkur skemmtilega á óvart.  Þátttakendur á fundinum voru auk félagsmanna fólk sem starfar á öllum skólastigum.

Síðari fundurinn var haldinn í Menntaskólanum í Kópavogi 25. mars.  Á þeim fundi sagði Anna Magnea Hreinsdóttir frá doktorsritgerðinni sinni sem heitir “Af því að við erum börn.”  Markmiðið með rannsókninni var að skoða og meta, með þátttöku barna, foreldra og starfsfólks, starf fjögurra leikskóla á Íslandi.  Á fundinn mættu 14 manns og voru það, fyrir utan félagsmenn, einkum fólk sem starfar á leikskólasviði. 

Heimasíðan félagsins www.eval.is er enn í mótun.  Á aðalfundi í fyrra var ákveðið að koma upp ritaskrá félagsmanna þar sem finna má yfirlit yfir skýrslur, greinar og önnur skrif þeirra um mat.   Fyrstu ritaskrárnar eru komnar inn á síðuna og má finna þær undir hlekknum Skýrslur og greinar.  Þar eru fjögur nöfn og ef smellt er á eitthvert þeirra kemur upp ritaskrá viðkomandi.  Ákveðið var að hafa uppsetningu á ritaskránum eins líka og hægt væri og þess vegna viljum við biðja félagsmenn, um leið og við hvetjum alla til að senda inn sína ritaskrá, að hafa þær skrár sem eru komnar á heimasíðuna til hliðsjónar hvað varðar uppsetningu og leturgerð.  

Á starfsárinu var fjölgun í félaginu um rúmlega 10% þegar Hanna María Kristjánsdóttir og Anna Magnea Hreinsdóttir gengu í félagið.  Núna eru félagsmenn orðnir 19 talsins. 

Við viljum þakka ykkur fyrir góðan vetur og vonumst til að sjá félagið okkar vaxa og dafna hér eftir sem hingað til.

F.h. stjórnar

Björk Ólafsdóttir