Ágætu félagar
Þá er þriðja starfsári Íslenska matsfræðifélagsins að ljúka og því rétt að líta yfir verkefni ársins.
Ný stjórn var kosin á aðalfundi þann 6. maí 2009. Þá gengu þær Margrét Friðriksdóttir og Sigurborg Matthíasdóttir úr stjórn og í þeirra stað komu Sigríður Sigurðardóttir og Helga Dís Sigurðardóttir. Varastjórn breyttist líka. Þar komu inn í stað Sigríðar Sigurðardóttur og Oddnýjar Harðardóttur, þær Sigurlína Davíðsdóttir og Auður Pálsdóttir.
Á fyrsta fundi stjórnarinnar þann 13. október sama ár skipti stjórnin með sér verkum þannig: Björk Ólafsdóttir hélt áfram sem formaður stjórnar, Ólafur Jóhannsson tók að sér störf gjaldkera og Helga Dís Sigurðardóttir störf ritara. Halldóra Pétursdóttir og Sigríður Sigurðardóttir eru meðstjórnendur auk þess sem Sigríður annast heimasíðu félagsins.
Haldnir voru tveir félagsfundir á starfsárinu. Fyrri fundurinn var haldinn 5. nóvember í Menntaskólanum við Sund. Á fundinum voru þær Hjördís Þorgeirsdóttir, konrektor og Sigurrós Erlingsdóttir, kennslustjóri Menntaskólans við Sund og Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi með innlegg. Hjördís og Sigurrós sögðu frá reynslu kennara í MS af starfendarannsóknum og hvernig þær hafa gagnast þeim við að meta og bæta starfshætti sína. Margrét sagði frá reynslu þeirra í MK af því að nota gæðastjórnunarkerfið ISO 9001 til að auka gæði skólastarfsins. Þessi fundur var hugsaður fyrst og fremst fyrir félagsmenn matsfræðifélagsins og þeirra gesti og því ekki auglýstur utan félagsins. Þátttaka var góð og líflegar umræður spunnust meðal fundarmanna.
Síðari félagsfundurinn var haldinn 25. Mars í Vatnsendaskóla í Kópavogi. Viðfangsefni þess fundar var innra mat í grunnskólum og tengsl innra mats og umbóta í kjölfar þess. Óskar Björnsson skólastjóri í Árskóla í Skagafirði og Hallfríður Sverrisdóttir aðstoðarskólastjóri við sama skóla sögðu frá skoska matskerfinu Gæðagreinar sem þau ásamt skólaskrifstofu Skagafjarðar hafa þýtt og staðfært (HGIOS). Nú í vetur hefur verið unnið að þýðingu á nýjustu útgáfunni á þessu skoska kerfi og þar eru nokkrar breytingar sem þau Óskar og Hallfríður kynntu fyrir fundargestum. Að þeirra erindi loknu kynntu Guðrún Soffía Jónasdóttir skólastjóri Vatnsendaskóla og Guðmundur Freyr Sveinsson aðstoðarskólastjóri við sama skóla þær aðferðir sem notaðar hafa verið í Vatnsendaskóla við innra mat. Innra mat í Vatnsendaskóla byggir á samsettri aðferðafræði sem hefur verið þróuð innan skólans. Fundurinn var auglýstur í öllum grunnskólum og á skólaskrifstofum á suð-vestur horni landsins og var þátttaka góð. Um 20 gestir mættu á fundinn.
Af öðrum verkefnum stjórnar er það að segja að ákveðið var á síðasta aðalfundi að stjórnin ásamt Sigurlínu Davíðsdóttur tæki að sér að útbúa hagnýtar leiðbeiningar um sjálfsmat grunnskóla og annarra skólastiga. Þrír fulltrúar stjórnar ásamt Sigurlínu hittust á fundi nú í haust og þar var mótaður rammi fyrir leiðbeiningarnar. Sigurlína tók að sér að semja fyrstu drög, sem hún hefur nú gert og bíður frekari vinna við leiðbeiningarnar næsta starfsárs.
Við í stjórninni viljum þakka fyrir góðan vetur.
F.h. stjórnar
Björk Ólafsdóttir