Ágætu félagar
Þá er fjórða starfsári Íslenska matsfræðifélagsins að ljúka og ég ætla að fara yfir verkefni ársins.
Í haust urðu þær breytingar á stjórn félagsins að Sigríður Sigurðardóttir gekk úr stjórn og Auður Pálsdóttir tók sæti í hennar stað. Verkaskipting stjórnarmanna hélst óbreytt að öllu leyti nema því að Helga Dís tók að sér að annast heimasíðu félagsins í stað Sigríðar.
Fundir stjórnarinnar á árinu fóru fyrst og fremst í að vinna að gerð leiðbeininga um innra mat á skólastarfi í samstarfi við Sigurlínu Davíðsdóttur. Vegna leiðbeininganna og annarra stjórnarstarfa voru haldnir sex fundir á árinu.
Mál atvikuðust þannig að almennir félagsfundir hafa ekki verið haldnir frá síðasta aðalfundi. Skýringin er sú að við stefndum á að hafa kynningarfund fyrir félagsmenn um innra-mats leiðbeiningarnar þegar búið var að gefa þær út. Við ætluðum okkur að ná þeim áfanga síðastliðið haust en það gekk ekki eftir og í stuttu máli þá eru leiðbeiningarnar ekki komnar í endanlegt útgáfuform ennþá. Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun hugsanlega koma eitthvað að því að styrkja rafræna útgáfu leiðbeininganna þannig að útgáfan er sem stendur á frágangs- og umræðustigi.
Af þessum sökum frestaðist að halda fund þar til að ljóst var að leiðbeiningarnar kæmu ekki út á þessu starfsári og ekki yrði kynningarfundur haldinn vegna þeirra. Engu að síður verður haldinn einn kynningarfundur á starfsárinu sem verður hér strax að loknum aðalfundi. Halldóra Pétursdóttir mun þá kynna rannsókn sína á innra mati í sex leikskólum í Reykjavík. Rannsóknin var unnin á árunum 2009-2011.
Við í stjórninni viljum þakka fyrir góðan vetur.
F.h. stjórnar
Björk Ólafsdóttir