Kynning á nýjum leiðbeiningum um innra mat skóla

Íslenska matsfræðifélagið mun kynna nýjar leiðbeiningar um innra mat skóla þann 9. nóvember nk. kl. 16–17 í stofu H202 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Leiðbeiningarnar voru unnar af sjálfboðaliðsteymi frá Íslenska matsfræðifélaginu undir stjórn Sigurlínu Davíðsdóttur, prófessors á Menntavísindasviði HÍ.

Á fundinum mun Sigurlína kynna leiðbeiningarnar og síðan mun Brynja Dís Björnsdóttir, verkefnastjóri í Álfhólsskóla í Kópavogi, segja frá hvernig leiðbeiningarnar nýttust henni í stefnumótunarvinnu Álfhólsskóla.

Allir velkomnir.