Minni á kynningarfundinn í dag klukkan 16.00 í stofu H202 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Á fundinum mun Sigurlína Davíðsdóttir kynna leiðbeiningar um innra mat skóla sem Íslenska matsfræðifélagið hefur gefið út og gert aðgengilegar hér á síðunni undir: Matsfræði – leiðbeiningar. Þar er ennfremur að finna skjákynningu með erindi Sigurlínu.
Á fundinum mun Brynja Dís Björnsdóttir, verkefnastjóri í Álfhólsskóla í Kópavogi, einnig segja frá hvernig leiðbeiningarnar nýttust henni í stefnumótunarvinnu Álfhólsskóla.